„Fólki blöskrar þessar bónusgreiðslur“

Ásgeir Haraldsson, yf­ir­lækn­ir á Barna­spítala Hrings­ins.
Ásgeir Haraldsson, yf­ir­lækn­ir á Barna­spítala Hrings­ins.

„Ég hef fengið mjög mikið af kröftugum viðbrögðum,“ segir Ásgeir Har­alds­son, pró­fess­or í barna­lækn­ing­um og yf­ir­lækn­ir á Barna­spítala Hrings­ins, í samtali við mbl.is. „Og þau hafa öll verið á einn veg; fólki blöskrar svolítið þessar bónusgreiðslur,“ segir Ásgeir en hann hefur gagnrýnt bónusgreiðslur til hóps starfsmanna hjá eign­ar­halds­fé­lagi Kaupþings.   

Frétt mbl.is: Yfirlæknir gagnrýnir bónusa Kaupþings

Ásgeir setti bónusgreiðslurnar í samhengi við heilbrigðiskerfið en hann seg­ir bónus­ana sem um ræðir vera álíka háa og laun allra starfs­manna Barnaspít­al­ans á einu ári. 

Frétt mbl.is: Gætu fengið 1,5 milljarða í bónusgreiðslur

Ásgeir kveðst hafa fengið viðbrögð úr ýmsum áttum segist finna fyrir því að fólk hafi sterka skoðun á málinu og margir tekið í sama streng. „Fólk er orðið mjög vant því að heyra stórar tölur og áttar sig ekki á samhenginu en þegar svona er sett í samhengi við kostnað í heilbrigðiskerfinu eða menntakerfinu eða slíku þá blöskrar fólki held ég,“ segir Ásgeir.

Þá hefur BSRB jarnframt gagrýnt fyrirhugaðar bónusgreiðslur Kaupþings sem bandalagið telur óásættanlegar og hefur skorað á Alþingi að bregðast við. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert