Rannsókn á lögreglumanni lokið

Lögreglustöðin Hverfisgötu.
Lögreglustöðin Hverfisgötu. Þórður Arnar Þórðarson

Rannsókn ríkissaksóknara á lögreglumanni, sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald á milli jóla og nýárs grunaður um óeðlileg samskipti við brotamenn, er lokið. Þetta staðfestir Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari við mbl.is. Ákvörðun um hvort ákært verði í málinu liggur þó ekki enn fyrir.

Er maðurinn grunaður um að hafa lekið upp­lýs­ing­um og jafn­vel þegið greiðslur fyr­ir. Maður um fer­tugt var einnig sett­ur í gæslu­v­arðhald vegna máls­ins. Brot­in sem lög­reglumaður­inn er sakaður um varða eins til sex ára fang­elsi. Hafi hann af­hent upp­lýs­ing­ar gegn greiðslu gæti sá sem mútaði hon­um átt yfir höfði sér allt að þriggja ára fang­elsi. Maðurinn var starf­andi fyr­ir fíkni­efna­deild lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert