„Bera vott um fjandsamlegt viðhorf“

Sindri Sigurgeirsson formaður Bændasamtakanna.
Sindri Sigurgeirsson formaður Bændasamtakanna. mbl.is/Árni Sæberg

Ummæli Finns Árnasonar, forstjóra Haga, um bændur og dýraníð bera vott um fjandsamlegt viðhorf til bænda. Þetta segir Sindri Sigurgeirsson formaður Bændasamtaka Íslands, í yfirlýsingu sem birtist á vefsíðu samtakanna í dag.

Ummælin sem vísað er til lét Finnur falla á Facebook.

Forstjóri Haga ætti að sjá sóma sinn í að biðja bændur afsökunar á fráleitum ummælum um að búvörusamningar séu ríkisstyrkt dýraní,“ segir Sindri m.a. Hann segir ummæli Finns fara út fyrir öll mörk og vera Högum til háborinnar skammar.

Við frábiðjum okkur þann málflutning sem forstjóri stærstu smásölukeðju landsins viðhefur. Menn verða að sýna lágmarks mannasiði þegar þeir tjá sig um atvinnugrein sem þúsundir manns byggja afkomu sína á um allt land.

Finnur deildi eftirfarandi færslu fyrir stundu:

Yfirlýsing formanns BÍ í heild:

Forstjóri Haga ætti að sjá sóma sinn í að biðja bændur afsökunar á fráleitum ummælum um að búvörusamningar séu ríkisstyrkt dýraníð. Honum er í sjálfsvald sett að gagnrýna samningana en ummæli af þessu tagi eru út fyrir öll mörk og bera vott um einkar fjandsamlegt viðhorf í garð íslenskra bænda. Ítrekað hefur forstjóri Haga haft uppi neikvæð ummæli um íslenskan landbúnað en með þessum tilteknu ummælum tekur steininn úr og eru því fyrirtæki sem hann starfar fyrir til háborinnar skammar.

Íslenskir bændur vinna að því hörðum höndum allan ársins hring við að tryggja íslenskum almenningi heilnæm matvæli án sýklalyfja eða annarra aukaefna sem algeng eru í landbúnaði í öðrum löndum. Það er eitt af forgangsmálum Bændasamtakanna að íslenskir bændur standist ítrustu kröfur um dýravelferð svo að Ísland verði í fararbroddi í þeim efnum.

Nýir búvörusamningar eru viðamiklir og skipta bændur og almenning á Íslandi verulegu máli. Þeir tryggja það að neytendur fá íslenskar búvörur á hagstæðu verði í verslunum og að hér sé hægt að reka blómlegan landbúnað. Við frábiðjum okkur þann málflutning sem forstjóri stærstu smásölukeðju landsins viðhefur. Menn verða að sýna lágmarks mannasiði þegar þeir tjá sig um atvinnugrein sem þúsundir manns byggja afkomu sína á um allt land.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert