Segir ávirðingar í skýrslunni svívirðu

Guðlaugur Þór og Vigdís Hauksdóttir kynntu skýrsluna sem þau létu …
Guðlaugur Þór og Vigdís Hauksdóttir kynntu skýrsluna sem þau létu gera fyrir blaðamönnum í vikunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jóhannes Karl Sveinsson, hæstaréttarlögmaður sem kom að samningum við erlenda kröfuhafa föllnu bankanna, segir ávirðingar í skýrslu fjárlaganefndar Alþingis svívirðilegar. Þetta kom fram í tíufréttum RÚV.

Nánast sakaðir um landráð

Sagði hann að embættismenn og sérfræðingar væru nánast sakaðir um landráð, án þess að fá tækifæri til að svara ásökunum. Guðlaugur Þór Þórðarson, varaformaður fjárlaganefndar, baðst fyrr í kvöld afsökunar á orðalagi í skýrslu hans og Vigdísar Hauksdóttur, formanns nefndarinnar, um einkavæðingu bankanna hina síðari. 

Jóhannes Karl sagði í samtali við RÚV að þungt hljóð væri í hópnum sem kom að samningagerðinni. „Mér fannst þetta algjör svívirða og sér í lagi vegna þess að það var ekki talað við einn einasta mann sem að þessu hafði komið og hefði getað útskýrt málið fyrir þeim sem sömdu þessa skýrslu,“ sagði hann.

Biðst afsökunar á mistökunum

Á Facebook-síðu sinni sagði Guðlaugur Þór í kvöld að honum hefðu borist ábendingar um að orðalag í skýrslunni sé þannig að hægt sé að skilja það sem árásir eða gagnrýni á embættismenn og sérfræðinga. Hann segir að það hafi ekki verið ætlun meirihluta fjárlaganefndar að vega að starfsheiðri einstaklinga.

„Það er rétt og skylt að biðjast velvirðingar á slíkum mistökum. Í þessu ljósi verður orðalag skýrslunnar endurskoðað. Gildishlaðin orð eða annað sem valdið getur misskilningi fjarlægt þannig að efnisleg umræða fari fram,“ skrifar hann. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert