„Leikskólar eru ekki gæslustaðir“

Silja Dögg Gunnarsdóttir.
Silja Dögg Gunnarsdóttir.

„Ég vil þá segja að leikskólakennarastarfið er mjög vandasamt. Það krefst margra ára háskólamenntunar. Ábyrgðin sem fylgir því að annast og kenna ungum börnum er mikil. Launin eru alls ekki í samræmi við menntun og ábyrgð. Því verð ég að segja að borgarstjóri er með þessu að gjaldfella leikskólakennarastarfið. Leikskólar eru ekki gæslustaðir. “

Frétt mbl.is: Eldri borgarar „vel færir til vinnu“

Þetta sagði Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, á Alþingi í dag í umræðum um störf þingsins. Vísaði hún þar til ummæla sem höfð voru eftir Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra Reykjavíkurborgar, að mönnunarvanda á leikskólum borgarinnar mætti hugsanlega leysa með því að fá þar eldri borgara til starfa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert