Hækkun fæðisgjalda samþykkt í borgarstjórn

Breytingin hefur það í för með sér að fæðisgjald vegna …
Breytingin hefur það í för með sér að fæðisgjald vegna barna í leikskóla sem eru skráð í sjö til níu klukkustundir á dag hækkar úr 8.320 krónum á mánuði í 10.480 krónur á mánuði. mbl.is/Ásdís

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í gær að frá og með 1. október 2016 hækki fæðisgjald í leik- og grunnskólum borgarinnar um 100 krónur á dag. Hækkunin mun alfarið renna til skólamötuneyta í kaup á hráefni.  

Fram kemur í tilkynningu frá borgaryfirvöldum, að með þessu ætti að skapast svigrúm til að auka gæði matarins verulega.

Þá segir, að breytingin hafi það í för með sér að fæðisgjald vegna barna í leikskóla sem séu skráð í  sjö til níu klukkustundir á dag hækki úr 8.320 krónum á mánuði í 10.480 krónur á mánuði.

Verð fyrir máltíðir nemenda í grunnskólum borgarinnar hækki úr 7.100 krónum í 9.270 á mánuði.

„Framlag Reykjavíkur verður með þessu sambærilegt framlögum sveitarfélaga sem leggja mest í hráefnisframlög til skólamötuneyta. Leikskólagjöld og önnur gjöld vegna skólagöngu barna verða áfram með þeim lægstu á landinu,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert