Óska framlengingar gæsluvarðhalds

Farið hefur verið fram á að gæsluvarðhald yfir manninum verði …
Farið hefur verið fram á að gæsluvarðhald yfir manninum verði framlengt til 1. október. mbl.is/Árni Sæberg

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum hefur lagt fram kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem sem grunaður er um alvarlega líkamsárás og kynferðisbrot gegn konu í Eyjum síðastliðinn laugardag.

Gæsluvarðhald yfir manninum  rennur út í dag. Á Facebook-síðu lögreglunnar kemur fram að farið hafi verið fram á að að Héraðsdómur Suðurlands framlengi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manninum um viku á grundvelli rannsóknarhagsmuna málsins.

Frétt mbl.is: Úrskurðaður í gæsluvarðhald

„Unnið er að fullum þunga í rannsókn á málinu og verið að yfirheyra alla sem hugsanlega geta veitt upplýsingar í málinu. Þá er einnig unnið úr öðrum gögnum sem borist hafa lögreglunni og tengjast málinu,“ að því er segir á Facebook síðu lögreglunnar..

Kon­an var flutt var með sjúkra­flugi frá Vest­manna­eyj­um til Reykja­vík­ur eftir að hafa fundist nak­in með mikla áverka í and­liti við hlið fata sinna og leikur grunur á að brotið hafi verið gegn henni kynferðislega. Lík­ams­hiti konunnar mæld­ist 35,3 gráður er hún fannst og sagði í áverka­vott­orði að hún hafi verið „af­mynduð í fram­an“.

Frétt mbl.is: Grunaður um kynferðisbrot

Sögð hafa fundist nakin í húsagarði

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert