Alþingismenn skora á pólska þingmenn

Ásta Guðrún Helgadóttir, þingmaður Pírata.
Ásta Guðrún Helgadóttir, þingmaður Pírata. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ásta Guðrún Helgadóttir, þingmaður Pírata, hefur skrifað opið bréf til þingmanna pólska þingsins og hvatt þá til að draga til baka lagafrumvarp um nánast algjört bann við fóstureyðingum. Tugir alþingismanna hafa skrifað undir bréfið. 

Rík­is­stjórn Pól­lands hef­ur lagt fram frum­varp til laga þar sem kveðið er á um að kon­ur geti aðeins farið í fóst­ur­eyðingu ef líf móður sé í húfi. Eins að þyngja eigi refs­ing­ar ef fóst­ur­eyðing­ar­lög­in eru brot­in. Þeir sem fram­kvæmi fóst­ur­eyðing­ar eiga sam­kvæmt frum­varp­inu yfir höfði sér allt að fimm ára fang­elsi.

Frétt mbl.is: Öryggið tekið frá konum

Í bréfinu eru þingmenn í Póllandi hvattir til þess að standa vörð um sjálfsákvörðunarrétt kvenna, kvenréttindi og jafnrétti til heilbrigðisþjónustu, þar með talið skipulag á fjölskylduhögum. Íslensku þingmennirnir lýsa í bréfinu þungum áhyggjum af lagafrumvarpinu og skora á pólska þingmenn að afturkalla það. 

„Við viljum minna pólska þingið á hina sameiginlegu alþjóðlegu ábyrgð og skyldu sem bæði Ísland og Pólland bera til þess að útrýma öllu misrétti gagnvart konum,“ segir meðal annars í bréfinu. Þá segir þar jafnframt að öruggar fóstureyðingar séu nauðsynlegur þáttur í rétti kvenna til andlegs og líkamlegs sjálfstæðis.

Þrjátíu þingmenn hafa þegar skrifað undir bréfið og koma þeir úr öllum flokkum á Alþingi. Í tilkynningu frá Pírötum segir að fleiri undirskriftir eigi mögulega eftir að bætast við.

Kon­ur í Póllandi lögðu í dag niður störf til að mót­mæla frumvarpinu en í frétt BBC um málið sagði að kvenna­frí­dag­ur­inn á Íslandi árið 1975 væri þeim pólsku hvatn­ing. Svart­klædd­ir mót­mæl­end­ur gengu um göt­ur og kröfðust rétt­inda yfir lík­ama sín­um. Íslendingar sýndu Pólverjum samstöðu með mótmælum á Austurvelli í dag.

Fóst­ur­eyðing­ar eru nú þegar nán­ast bannaðar í Póllandi en und­an­tekn­ing­arn­ar eru fáar. Aðeins er heim­ilt að fram­kvæma fóst­ur­eyðingu ef kon­ur verða þungaðar eft­ir nauðgun eða sifja­spell, sem þarf að vera skjalfest hjá sak­sókn­ara. Eins ef heilsa móður er í hættu eða ef fóstrið er mjög af­myndað.

Þeir þingmenn sem undirrituðu bréfið voru:

Ásta Guðrún Helgadóttir, (P)

Svandís Svavarsdóttir, (V)

Oddný Harðardóttir, (S)

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, (S)

Guðmundur Steingrímsson, (Æ)

Björt Ólafsdóttir, (Æ)

Brynhildur Pétursdóttir, (Æ)

Ögmundur Jónasson, (V)

Jóhanna María Sigmundsdóttir, (B)

Össur Skarphéðinsson, (S)

Helgi Hrafn Gunnarsson, (P)

Katrín Jakobsdóttir, (V)

Óttarr Proppé, (Æ)

Birgitta Jónsdóttir, (P)

Katrín Júlíusdóttir, (S)

Ólína Kjerúlf Þórðardóttir, (S)

Árni Páll Árnason, (S)

Elsa Lára Arnardóttir, (B)

Líneik Anna Sævarsdóttir, (B)

Karl Garðarsson, (B)

Páll Valur Björnsson, (Æ)

Steinunn Þóra Árnadóttir, (V)

Helgi Hjörvar, (S)

Róbert Marshall, (Æ)

Birgir Ármannsson, (D)

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, (V)

Steingrímur J. Sigfússon, (V)

Silja Dögg Gunnarsdóttir, (B)

Kristján L. Möller, (S)

Unnur Brá Konráðsdóttir, (D)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert