Árekstur á Reykjanesbraut

Vegamótin sem um ræðir.
Vegamótin sem um ræðir. Skjáskot/Vefur Vegagerðarinnar

Tveggja bíla árekstur varð við gatnamót Hafnavegar og Reykjanesbrautar á milli klukkan eitt og hálftvö í dag.

Búið er að loka kafla af Reykjanesbrautinni vegna slyssins.

Lögreglan á Suðurnesjum gat ekki sagt til um hversu alvarlegt slysið var en tók fram að fólkið sé ekki í lífshættu.

Áreksturinn varð á sama stað og banaslys varð í júlí síðastliðnum. Vegaframkvæmdir hafa staðið þar yfir að undanförnu.

Frétt mbl.is: Óska skýringa frá Vegagerðinni

Reykjanesbrautin.
Reykjanesbrautin.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert