Veðurspár gengið vel eftir

Mikið hefur rignt á Suður- og Vesturlandi síðan í gær og hafa veðurspár gengið vel eftir samkvæmt tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Mest úrkoma hafi mælst í Bláfjöllum, en þar hafi sólarhringsúrkoma verið um 150 mm. Búast megi við mikilli rigningu á Vesturlandi fram yfir miðnætti, en á Suðurlandi megi búast við mikilli úrkomu allan næsta sólarhring.

Veðurvefur mbl.is

„Mestu flóðin hingað til hafa verið á Barðaströnd, Snæfellsnesi og á svæðinu við Mýrdalsjökul. Einnig hafa verið miklir vatnavextir í ám í nágrenni Reykjavíkur og er enn að vaxa í þeim. Enn hafa ekki verið mjög miklir vatnavextir á vatnasviði Hvítár og Ölfusár en rennsli þar á eftir að vaxa allan morgundaginn. Mjög mikið hefur verið í Soginu. Rennsli þar er nú um 220 m³/s og er enn að vaxa. Meðalrennsli í Soginu er um 109 m³/s. Hámarkið þar verður líklega á morgun en spáð er mikilli úrkomu þar í nótt. Rennsli Múlakvíslar og Jökulsár á Sólheimasandi hefur líkega sjaldan orðið meira undanfarna áratugi en í jökulhlaupum.“

Mjög mikið rennsli sé einnig í Krossá í Þórsmörk og er áin farin að dreifa mikið úr sér. „Enn á eftir að vaxa mjög í ám á svæðinu frá Mýrdalsjökli til Hornafjarðar. Veðurstofan er með vatnshæðarmæli í Djúpá, rennsli þar er nú komið yfir 100 m³/s og vex hratt. Gera má ráð fyrir að rennsli Djúpár og annarra vatnsfalla í Skaftafellssýslu haldi áfram að vaxa þangað til síðdegis á morgun.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert