Óvissustigi vegna Mýrdalsjökuls aflétt

Mýrdalsjökull.
Mýrdalsjökull. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Ríkislögreglustjórinn í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi hefur ákveðið að afturkalla óvissustig vegna mögulegs eldgoss undir Mýrdalsjökli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Verulega hafi dregið úr skjálftavirkni á þessum slóðum eftir kröftuga skjálftahringu innan Kötluöskjunnar í Mýrdalsjökli á tímabilinu 28. september - 2. október. Mældir hafi verið yfir 500 jarðskjálftar á tímabilinu.

Önnur minni skjálftahrina hafi orðið á tímabilinu 5. – 8. október, um 130 skjálftar, en síðan hafi verið lítil virkni á þeim slóðum. Skjálftavirkni í Mýrdalsjökli hafi þó verið mun meiri í haust en verið hafi síðustu ár og áfram verði fylgst vel með þróun mála.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert