Dómur tók undir tilgangsleysi lögbanns

Brjánn Jónsson, framkvæmdastjóri Símafélagsins, telur að þótt Héraðsdómur Reykjavíkur hafi staðfest lögbann á Símafélagið við því að veita netaðgengi að vefsvæðunum deildu og piratebay ásamt lénum sem vísa á sömu svæði, hafi dómurinn tekið undir meginsjónarmið Símafélagsins um tilgangsleysi og skaðsemi lögbannsins.

Frétt mbl.is: Héraðsdómur staðfestir lögbann vegna deildu og piratebay

„Dómurinn tekur undir sjónarmið Símafélagsins um að tæknileg útfærsla lögbannsins, með svokallaðri DNS-lokun, geti aukið kostnað notenda, minnkað gæði netþjónustunnar og sé í eðli sínu hálftilgangslaus ráðstöfun. Dómurinn gengur síðan enn lengra í sínu eigin mati og segir að DNS-lokun sé skammtímalausn sem sé ósamrýmanleg þróun öryggismála á netinu og fari gegn heildarbyggingu þess,“ segir Brjánn í tilkynningu.

„Þrátt fyrir þetta mat kemst dómurinn að þeirri mótsagnakenndu niðurstöðu að lögbannið sé ekki tilgangslaust með öllu og að DNS-lokun sé minnst íþyngjandi útfærslan á lögbanninu fyrir fjarskiptafyrirtæki og viðskiptavini þeirra af þeim aðferðum sem koma til greina.“

Brjánn segir að dómurinn telji sig líklega bundinn af fyrri ákvörðun um sambærilegt efni.  „Meirihluti dómenda taldi Símafélagið hafa komið fram með réttmætar röksemdir, m.a. um tæknilega vankanta við að framfylgja lögbanninu, sem hafi verið til marks um það að veruleg vafaatriði hafi verið í málinu. Það væri gríðarlega mikilvægt að fá æðra dómstig til að fjalla um málið. Kostnaður við slíkt er hins vegar mikill fyrir lítið félag eins og Símafélagið og því er óvíst um framhald málsins,“ segir hann í tilkynningunni. 

„Það er mjög mikilvægt að það komi fram að Símafélagið styður STEF heilshugar í baráttu sinni gegn ólöglegri dreifingu höfundarréttarvarins efnis. Við teljum STEF einfaldlega vera á villigötum. Má þar nefna tilgangsleysi aðgerðanna, ógn við öryggi internetsins ásamt þeirri ritskoðun sem lögbannið felur í sér.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert