Lögreglan leitar að konu

mynd/Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar aðstoðar almennings við að ná sambandi við konu, en hana má sjá á meðfylgjandi myndum. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu sást síðast til hennar á hóteli í miðborg Reykjavíkur á laugardaginn. 

Þeim sem geta gefið lögreglu upplýsingar um konuna er bent á að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000.

Sett inn 3. nóvember klukkan 6:23 - lögreglan hefur sent frá sér tilkynningu um að konan sé fundin heil á húfi.

mynd/Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert