Lýsir furðu og vanþóknun á úrskurði

Landssamband lögreglumanna er undrandi á úrskurði kjararáðs.
Landssamband lögreglumanna er undrandi á úrskurði kjararáðs. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Landssamband lögreglumanna hefur lýst furðu sinni og vanþóknun á úrskurði og vinnubrögðum kjararáðs um hækkun launa æðstu embættismanna þjóðarinnar.

Frétt mbl.is: Laun forseta hækka um hálfa milljón

Í fréttatilkynningu segir að þegar einstaka hækkanir þessa hóps séu allt að 59% hærri en sem nemur grunnlaunum lögreglumanns í fullu starfi sé ljóst að eitthvað mikið bjátar á.

Þar segir að engin leið hafi verið fyrir landssambandið að fá laun lögreglumanna leiðrétt í kjaraviðræðum á undanförnum árum. „Það kemur því eins og blaut tuska í andlit lögreglumanna að í einni hendingu sé, án nokkurra vandkvæða, hægt að leiðrétta og hækka hæstu laun í landinu svo tugum prósenta skiptir.“

Fréttatilkynningin í heild sinni:

Landssamband lögreglumanna (LL) lýsir furðu sinni og vanþóknun á úrskurði og vinnubrögðum kjararáðs um hækkun launa æðstu embættismanna þjóðarinnar, sem úrskurðað var um laugardaginn 29. október sl., sama dag og kosningar til Alþingis Íslendinga fóru fram en hinsvegar ekki birt fyrr en að afloknum kosningum.

Það er engum blöðum um það að fletta að þeir einstaklingar sem veljast til þessara ábyrgðarmiklu starfa eigi að njóta góðra launakjara.  Þegar hinsvegar einstakar hækkanir þessa hóps eru allt að 59% hærri en sem nemur grunnlaunum lögreglumanns í fullu starfi er ljóst að eitthvað mikið bjátar á, í skilningi þeirra einstaklinga sem slíkar ákvarðanir taka, á þeim veruleika sem venjulegt launafólk býr við í þessu landi.

LL minnir á þá einföldu staðreynd og vísar í þessu sambandi til ályktunar stjórnarfundar landssambandsins frá 21. mars sl., að fjármálaráðherra staðfesti það í skriflegu svari við fyrirspurn á hinu háa Alþingi þann 15. mars sl., að laun lögreglumanna hefðu dregist aftur úr tilteknum hópum opinberra starfsmanna sem nemur a.m.k. um 9% frá því að verkfallsréttur lögreglumanna var afnuminn árið 1986.

LL hefur margítrekað kallað eftir þeim gögnum á umliðnum árum, sem fjármálaráðherra studdist við í svari sínu, en jafnan fengið þau viðbrögð að útilokað hafi verið, illa hægt eða erfitt að reikna út launaþróun lögreglumanna út frá þeim viðmiðunarhópum sem horft skyldi til við afnám verkfallsréttarins.  Þá hefur því jafnframt verið neitað, af hálfu fjármálaráðuneytisins, að láta hlutlausan aðila á borð við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands sjá um slíka útreikninga.

Engin leið hefur verið fyrir LL að fá tekið tillit til þessarar einföldu staðreyndar og laun lögreglumanna leiðrétt í þeim kjaraviðræðum sem átt hafa sér stað á umliðnum árum. Það kemur því eins og blaut tuska í andlit lögreglumanna að í einni hendingu sé, án nokkurra vandkvæða, hægt að leiðrétta og hækka hæstu laun í landinu svo tugum prósenta skiptir.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert