Mögulega eitrað fyrir kött

mbl.is/Styrmir Kári

Matvælastofnun hefur kært til lögreglu meinta eitrun fyrir kött á Selfossi í byrjun október. Grunur leikur á að eitrað hafi verið fyrir köttinn með því að blanda af ásetningi frostlegi saman við fæðu sem hann hefur komist í.

Kötturinn fór í skoðun og sýnatöku hjá Dýralæknaþjónustu Suðurlands og gáfu niðurstöður til kynna inntöku frostlagar. Málið var í kjölfarið tilkynnt til Matvælastofnunar. Við krufningu á kettinum hjá Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum komu í ljós breytingar í nýrum sem benda sterklega til frostlagareitrunar.

Ekki er vitað hvort málið tengist öðru sambærilegu máli í Hveragerði sumarið 2015 sem einnig var vísað til lögreglu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert