Réttlæting fyrir nýja og hærri skatta?

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Frá mínum bæjardyrum er staðan betri en áður var gert ráð fyrir,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag þar sem hann bregst við þeim ummælum Katrínar Jakobsdóttur, formanns Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, í gær að staðan í ríkisfjármálum væri þrengri en gert hefði verið ráð fyrir. Þar kæmu til viðbætur við ríkisútgjaldaáætlun meðal annars vegna samgöngumála.

Frétt mbl.is: Staðan tugum milljarða þrengri

„Hvers vegna er fólk sem talar svona ekki látið svara fyrir það hvað átt er við? Getur verið að þetta sé ekkert annað en yfirvarp til að réttlæta nýja og hærri skatta?“ segir Bjarni. Bendir hann á að Alþingi hafi afgreitt bæði fjármálaáætlun og fjáraukalög á síðustu mánuðum þar sem dregin sé upp skýr mynd af stöðunni. Það helsta sem breyst hafi sé að útlit sé fyrir að skattar og gjöld skili að minnsta kosti 10 milljörðum meira til ríkisins en áður hafi verið áætlað á næsta ári. Á móti hafi réttindi aldraðra og öryrkja verið aukin töluvert undir lok þingstarfa.

„Menn geta því ekki vísað í óvænta verri stöðu ríkisfjármála til að réttlæta skattahækkanir. Reyndar er alveg magnað að þegar við erum við hámark hagsveiflunnar sé verið að tala um þörf á nýjum sköttum til að auka útgjöld verulega,“ segir hann ennfremur.

Katrín Jakobsdóttir, formaður VG.
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert