Félag grunnskólakennara og samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa komist að samkomulagi. Skrifað verður undir nýjan kjarasamning klukkan 18.15 í kvöld. Þetta staðfesti Elísabet S. Ólafsdóttir, skrifstofustjóri ríkissáttasemjara, við mbl.is.
Samninganefndirnar hafa fundað frá því snemma í morgun. Stíf fundarhöld hafa verið undanfarnar vikur hjá samninganefnd Félagi grunnskólakennara og samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga hjá ríkissáttasemjara. Í gær var vinnufundur samninganefndanna þar sem þær fóru yfir málin hvor í sínu lagi.