Kynna samninginn trúnaðarmönnum

Vöfflurnar runnu ljúflega niður í kvöld.
Vöfflurnar runnu ljúflega niður í kvöld. mbl.is/Stella Andrea

„Við kynnum samninginn trúnaðarmönnum okkar í fyrramálið og þurfum svigrúm til að koma þessu til fólksins okkar,“ segir Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara, um nýsamþykktan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga.

Ólafur vildi ekki gefa neitt upp um innihald kjarasamningsins fyrr en að því loknu. Kjarasamningurinn gildir til nóvember 2017. Síðasti samningur sem var felldur gilti til ársins 2019.

Niðurstaða úr atkvæðagreiðslu um samninginn á að liggja fyrir 12. desember næstkomandi.

Nýr kjarasamningur undirritaður.
Nýr kjarasamningur undirritaður. mbl.is/Stella Andrea
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert