Leigusamningi Hringrásar sagt upp

Athafnasvæði Hringrásar.
Athafnasvæði Hringrásar. Ljósmynd/Hringrás

Stjórn Faxaflóahafna samþykkti í morgun að segja upp lóðaleigusamningi Hringrásar. Fyrirtækið fær frest til að flytja sig en ber að hreinsa lóðina áður en það hverfur á braut. Frá þessu greinir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í vikulegum pistli sínum.

Dagur segir Hringrás fá 20 daga til að hreyfa við andmælum.

Á sama fundi var samþykkt að segja fjármuni í nauðsynlegt viðhald í gamla Slippnum. „Því fylgdi bókun stjórnarinnar um að hafnarstjórn vill að slippurinn fái að halda áfram starfsemi sinni eins lengi og hægt er,“ segir borgarstjóri.

Forsvarsmenn Hringrásar sendu frá sér tilkynningu í síðustu viku vegna bruna á athafnasvæði fyrirtækisins. Þar sögðust þeir m.a. sýna áhyggjum af staðsetningu fyrirtækisins fullan skilning og að þeir væru opnir fyrir flutningi þess á hentugra svæði.

„Von­ast fyr­ir­tækið eft­ir góðu sam­starfi við borg­ar­yf­ir­völd og Faxa­flóa­hafn­ir við að finna hent­ugri staðsetn­ingu á höfuðborg­ar­svæðinu,“ sagði enn fremur í tilkynningunni.

Uppfært klukkan 16.25:

Mbl.is hafði samband við Kristján Ólafsson, framkvæmdastjóra Hringrásar, vegna málsins. Hann vildi ekki tjá sig að öðru leyti en því að stjórn fyrirtækisins myndi fara yfir málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert