Slitlagsblæðingar á Austurlandi

Blæðingar
Blæðingar Umferðarstofa

Vegagerðin varar við slitlagsblæðingum á milli Egilsstaða og Norðfjarðar. Mikilvægt er að draga úr hraða þegar bílar mætast og skoða vel dekkin áður en farið er í lengri ferðir og hreinsa þau ef vart verður við tjöru.

Hálka eða hálkublettir eru á köflum á Suðurlandi, þó er hringvegurinn auður. Það er mikið autt við innanverðan Faxaflóa en annars er víða nokkur hálka á Vesturlandi.

Á Vestfjörðum eru hálkublettir eða hálka nokkuð víða, einkum á fjallvegum. Þæfingsfærð er á Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði.  Snjóþekja er á köflum á Ströndum.

Hálka er víða á Norðurlandi vestra og austur yfir Öxnadalsheiði en að miklu leyti er autt við Eyjafjörð og í Þingeyjarsýslum. Hálka er á Mývatnsöræfum og Dettifossvegi en hálkublettir á  Möðrudalsöræfum.

Á Austur- og Suðausturlandi eru vegir að mestu greiðfærir þótt finna megi hálkubletti á fáeinum vegum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert