Vill að lögræðislögum verði breytt

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata. mbl.is/Björn Már Ólafsson

Í fyrsta ávarpi Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur Pírata á Alþingi hvatti hún þingmenn til þess að breyta lögræðislögum, þar sem nauðungarvistun einstaklings er heimiluð vegna geðsjúkdóms og einnig þvingaðar fóstureyðingar. 

Þórhildur Sunna benti á að í 19. grein laganna kemur fram að heimila megi frelsissviptingu, eða svokallaða nauðungarvistun einstaklings, á þeim grunni að hann sé „haldinn alvarlegum geðsjúkdómi eða verulegar líkur eru taldar á að svo sé eða ástand hans er þannig að jafna megi til alvarlegs geðsjúkdóms“.

Hún sagði að ekki sé að finna í lögræðislögunum önnur skilyrði til slíkrar frelsissviptingar. „Því verð ég að taka undir ítrekaðar ávirðingar Evrópunefndar um varnir gegn pyndingum sem bent hefur á að ákvæðið feli í sér lagalega mismunun gagnvart fólki með geðsjúkdóma,“ sagði Þórhildur.

„Annað alvarlegt dæmi um slíka mismunun er að finna í lögum um fóstureyðingar sem gera lögráðamanni lögræðissviptrar konu kleift að neyða hana í fóstureyðingu. Þvingaðar fóstureyðingar hafa verið skilgreindar sem form pyndinga af sérlegum sendiherra Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum.“

Hún sagði lögin hvorki standast stjórnarskrá né samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert