Þyrla flutti sjúkling frá Eyjum

TF-Líf, þyrla Landhelgisgæslunnar.
TF-Líf, þyrla Landhelgisgæslunnar. mbl.is/Árni Sæberg

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst fyrr í dag beiðni um aðstoð frá Heilbrigðisstofnuninni í Vestmannaeyjum vegna sjúklings sem þurfti að komast upp á land í aðgerð.

Vegna veðurs var ófært til Eyja og því komst sjúkraflugvél frá Mýflugi ekki þangað, að því er kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Seinni partinn tók aðeins að lægja og komst TF-LÍF í loftið klukkan 16.34. Þyrlan lenti á Vestmannaeyjaflugvelli klukkan 17.16 og rétt rúmum stundarfjórðungi síðar hélt hún aftur af stað til Reykjavíkur.

TF-LÍF lenti á Reykjavíkurflugvelli nú á sjöunda tímanum, klukkan 18.05.

Sjúkrabíll flutti svo sjúklinginn á Landspítalann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert