Vill opna hliðstæða flugbraut í Keflavík

Keflavíkurflugvöllur. Innanríkisráðherra vill láta opna flugbraut þar í stað suðvesturbrautarinnar …
Keflavíkurflugvöllur. Innanríkisráðherra vill láta opna flugbraut þar í stað suðvesturbrautarinnar sem lokað var á Reykjavíkurflugvelli. mbl.is/ÞÖK

Innanríkisráðuneytið skoðar nú möguleikann á opnun sérstakrar neyðarbrautar á Keflavíkurflugvelli. Skýr vilji er af hendi ráðherra fyrir því að sú flugbraut verði opnuð í stað suðvesturbrautarinnar sem var lokað á Reykjavíkurflugvelli í sumar.

Þetta kemur fram í skriflegu svari ráðuneytisins við fyrirspurn mbl.is. Greint var frá því á miðviku­dag að sjúkra­flug­vél Mý­flugs, sem flytja átti sjúk­ling frá Höfn í Hornafirði til Reykja­vík­ur, hafi verið flogið til Ak­ur­eyr­ar vegna veðurs. Haft var eft­ir Þor­keli Ásgeiri Jó­hanns­syni, flug­stjóra hjá Mý­flugi að við ríkj­andi veðuraðstæður hefði verið hægt að lenda á suðvest­ur­braut­inni, sem gjarn­an er nefnd neyðarbraut, en henni var lokað í sum­ar. 

Í svari innanríkisráðuneytisins segir að vegna fréttaflutnings af lokun suðvesturbrautar, og umfjöllunar í fjölmiðlum um mögulega notkun hennar vegna sjúkraflugs þrátt fyrir lokun vilji innanríkisráðuneytið taka eftirfarandi fram:

„Flugbraut 06-24 á Reykjavíkurflugvelli var lokað í kjölfar dóms Hæstaréttar um að brautinni skyldi lokað en dómurinn féll vegna málshöfðunar Reykjavíkurborgar á hendur ríkinu þar sem lokunar var krafist,“ segir í svari ráðuneytisins.

„Flugbraut með hliðstæða stefnu á Keflavíkurflugvelli, 07-25, hefur verið lokuð undanfarin ár en nú er til skoðunar hvort unnt verður að opna hana á ný. Vilji innanríkisráðherra til þess að opna þá flugbraut í stað hinnar lokuðu brautar á Reykjavíkurflugvelli er skýr.“

Isavia setti að ósk ráðuneytisins, nú í haust fram þrjár mismunandi kostnaðaráætlanir við opnun flugbrautar 07-25 á Keflavíkurflugvelli.

„Í ráðuneytinu er nú farið yfir þessa möguleika og metið hvort og hvaða leið unnt er að fara með tilliti til kostnaðar og mögulegra fjárveitinga til verkefnisins.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert