Akureyringur vann 64 milljónir

Fyrsti vinningur í Lottói kom í hlut eins heppins Akureyrings sem keypti miðann sinn í Hagkaupum á Furuvöllum. Vann hann rúmar 64,5 milljónir króna. Sex aðrir skiptu með sér bónusvinningnum.

Potturinn var fimmfaldur að þessu sinni og rennur hann óskiptur til eiganda miðans á Akureyri. Handhafar bónusvinningsins hljóta 136 þúsund krónur í sinn hlut hver.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert