Neyðarbrautin verði opnuð á ný

Reykjavíkurflugvöllur.
Reykjavíkurflugvöllur. mbl.is/Árni Sæberg

Bæjarráð Akureyrarbæjar krefst þess að neyðarbraut Reykjavíkurflugvallar verði opnuð á nýjan leik þar til önnur og jafngóð lausn finnst. Þetta kemur fram í bókun sem samþykkt var á fundi ráðsins í morgun. Þar er minnt á að eina hátæknisjúkrahús Íslands sé í höfuðborg landsins og að tryggja verði greiða leið sjúklinga að því óháð því hvar á landinu fólk sé statt.

Bókunin er svohljóðandi:

„Í höfuðborg Íslands er eina hátæknisjúkrahús landsins. Það er því lífsnauðsynlegt að þangað sé ávallt greið leið með sjúklinga hvort sem er af höfðuborgarsvæðinu eða landsbyggðunum. Lokun Neyðarbrautarinnar svokölluðu á Reykjavíkurflugvelli hefur á undangengnum vikum leitt til þess að sjúkraflugvélar hafa ekki getað lent í Reykjavík né annars staðar á suðvesturhorninu með alvarlega veika einstaklinga, sem hafa þurft á bráðnauðsynlegri umönnun að halda á þessu eina hátæknisjúkrahúsi okkar landsmanna. Það er því ófrávíkjanleg krafa bæjarráðs Akureyrarkaupstaðar að neyðarbraut Reykjavíkurflugvallar verði opnuð aftur þar til önnur og jafngóð lausn finnst. Bæjarráð skorar á borgarstjórn Reykjavíkurborgar, innanríkisráðherra og Alþingi að stuðla að því að svo geti orðið.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert