Skjálfti upp á 3,3 stig

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Jarðskjálfti, sem mældist 3,3 stig að stærð og átti upptök sín í suðaustanverðri Bárðarbunguöskjunni reið yfir klukkan 11:10 í morgun.  Engin merki sjást um gosóróa, samkvæmt upplýsingum frá jarðvársviði Veðurstofu Íslands.

Undanfarna tvo sólarhringa hafa þrír skjálftar sem hafa verið 3 stig eða meira riðið yfir á landinu en töluverð skjálftavirkni var á Hengilssvæðinu fyrr í vikunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert