Gísli nýr formaður Varðar

Gísli Kr. Björnsson, formaður Varðar.
Gísli Kr. Björnsson, formaður Varðar.

Gísli Kr. Björnsson héraðsdómslögmaður var í gærkvöld kjörinn formaður Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík á aðalfundi fulltrúaráðsins. Fráfarandi formaður, Kristín Edwald, gaf ekki kost á sér til endurkjörs og var í lok fundar þakkað fyrir vel unnin störf.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Auk Gísla voru þau Alda M. Vilhjálmsdóttir, Árni Árnason, Árni Guðmundsson, Jóhannes Stefánsson, Lilja Birgisdóttir, Matthildur Skúladóttir og Sólveig Pétursdóttir kjörin í stjórn Varðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert