Útboðsferli hefst síðar í vikunni

Reykjanesbrautin.
Reykjanesbrautin. mbl.is/Golli

Útboðsferli vegna mislægra gatnamóta á mótum Reykjanesbrautar og Krísuvíkurvegar hefst síðar í þessari viku.

Jón Gunnarsson samgönguráðherra greindi frá þessu í kvöldfréttum RÚV. 

Einnig stendur til að laga hættulegan vegarkafla á Grindavíkurvegi. Jón hefur beðið Vegagerðina um tillögur að úrbótum á þeim kafla.

Jón hafði áður greint frá því að ráðist yrði í útboð á mótum Reykjanesbrautar og Krísavíkurvegar í upphafi þessa árs.

Frétt mbl.is: Mislæg gatnamót á dagskrá

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert