María Finnsdóttir hjúkrunarfræðingur er látin, 94 ára að aldri. María var fædd hinn 18. ágúst 1922 á Hvilft í Önundarfirði. Foreldar hennar voru Finnur Finnsson bóndi og Guðlaug Jakobína Sveinsdóttir húsmóðir.
Systkini Maríu voru Sveinbjörn, Ragnheiður, Hjálmar, Sigríður, Jakob, Sveinn, Jóhann, Málfríður, Kristín og Gunnlaugur.
María lauk gagnfræðaprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1943 og lauk námi við Hjúkrunarskóla Íslands 1952. Hún stundaði framhaldsnám í Bandaríkjunum, Danmörku og Englandi. Þá stundaði hún nám við Háskóla Íslands, félagsvísindadeild, árin 1982-1984.
María var deildarhjúkrunarkona á Landspítalanum 1954-1963, kennari við Hjúkrunarskóla Íslands 1960-1963, forstöðukona á Kleppi 1963-1969, kennari við Háskóla Íslands, námsbraut í hjúkrunarfræði 1975-1976 og fræðslustjóri Hjúkrunarfélags Íslands 1979-1992.
Eftir Maríu liggja allmargar greinar og ritgerðir um hjúkrun.
Maríu var margvíslegur sómi sýndur fyrir störf sín. Hún varð heiðursfélagi í Hjúkrunarfélagi Íslands árið 2003 og átti sæti í stjórn félagsins árin 1963-1971.