Heiða Björg varaformaður Samfylkingarinnar

Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, og Heiða Björg Hilmisdóttir varaformaður.
Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, og Heiða Björg Hilmisdóttir varaformaður. mbl.is/Árni Sæberg

Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, var kjörin varaformaður flokksins á flokksstjórnarfundi sem stendur yfir í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ. Heiða Björg var ein í framboði og var því sjálfkjörin.

Kjósa þurfti varaformann í kjölfar þess að Oddný G. Harðardóttir sagði af sér sem formaður Samfylkingarinnar í kjölfar þingkosninganna í október og Logi Már Einarsson varaformaður tók við formennskunni í flokknum.

Heiða Björg Hilmisdóttir er með MBA-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og M.Sc.-gráðu í næringarrekstrarfræði. Hún starfar sem deildarstjóri yfir eldhúsi og matsölum á Landspítalanum. Heiða er gift Hrannari Birni Arnarssyni og eiga þau fjögur börn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert