Nauðgari og brotaþoli gera upp fortíðina

Þórdís Elva Þorvaldsdóttir.
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir.

Rithöfundurinn, fyrirlesarinn og leikskáldið Þórdís Elva Þorvaldsdóttir hefur skrifað bókina Handan fyrirgefningar með manninum sem nauðgaði henni á unglingsaldri, Tom Stranger. 

Undir lok síðasta árs héldu þau fyrirlestur saman um efni bókarinnar þar sem þau, gerandi og brotaþoli, stigu fyrst fram í sameiningu. Bókin er væntanlega 16. mars.

Þegar Þórdís Elva var 16 ára unglingur í Reykjavík var henni nauðgað af kærasta sínum, ástralska skiptinemanum Tom. Hún kærði aldrei ofbeldið sem hafði djúpstæð áhrif á alla hennar tilveru. Mörgum árum síðar skrifaði hún Tom og lýsti ofbeldinu sem hann beitti hana, í tilraun til að skila skömminni og rjúfa eigin þögn. Hún bjó sig undir neikvæð viðbrögð en fékk þess í stað skilyrðislausa játningu frá Tom, með ósk um að gera upp fortíðina í sameiningu. 

Gerendur og brotaþolar rjúfi þögnina

Þórdís segist hafa skrifað bókina einmitt vegna þess að henni er það kleift. „Ég var ekki grýtt, hýdd eða fangelsuð fyrir að hafa verið nauðgað,“ segir hún. „Ég var ekki neydd í hjónaband með gerandanum. Ég var ekki myrt til að endurheimta „heiður fjölskyldunnar“. Á vissan hátt má segja að stærsta áfall lífs míns sé jafnframt til marks um hversu mikilla forréttinda ég nýt, því ég get tjáð mig um það án þess að stofna öryggi mínu í hættu. En forréttindum fylgir ábyrgð og mér finnst ég skyldug til að beita rödd minni þegar svo margir brotaþolar um allan heim geta það ekki. En það er ekki nóg að brotaþolar tjái sig. Gerendur þurfa líka að rjúfa þögnina og axla ábyrgð.“

Tom tekur í sama streng: „Áframhaldandi þögn leiðir ekki til breytinga. Ég hef verið hluti af þessu vandamáli og nú langar mig að leggja mitt af mörkum til lausnarinnar. Tekið skal fram að ég er einn einstaklingur og alls ekki fulltrúi stærri hóps eða karlmanna í heild. Þetta er eingöngu mín saga, saga um hvítan millistéttarmann sem nauðgaði sextán ára kærustunni sinni þegar hann var sjálfur átján ára, og vill nú taka ábyrgð á sársaukanum sem hann hefur valdið í von um að það opni uppbyggilega umræðu.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert