28.660 tekið afstöðu til líffæragjafar

Um 28.660 manns hafa tekið afstöðu til líffæragjafar á þar til gerðri heimasíðu á vegum Landlæknisembættisins. Alls hafa 28.382 skráð sig sem líffæragjafa en 278 sagst ekki vilja gefa líffæri sín við andlát.

Mun fleiri konur en karlar hafa tekið afstöðu; 18.913 á móti 9.747.

Á umræddum vef Landlæknisembættisins er ekki aðeins hægt að taka jákvæða eða neikvæða afstöðu til líffæragjafar, heldur er einnig hægt að útlista þau líffæri sem viðkomandi vill ekki gefa, ef einhver eru.

Tölulegar upplýsingar um hvaða líffæri það eru sem fólk vill síður gefa liggja hins vegar ekki fyrir hjá embættinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert