Blóðbankinn tekur í notkun nýjar vélar

Nýjar vélar til blóðskiljunar teknar í notkun í Blóðbankanum. Jórunn …
Nýjar vélar til blóðskiljunar teknar í notkun í Blóðbankanum. Jórunn Frímannsdóttir deildarstjóri (t.h.) og Vigdís Jóhannsdóttir aðstoðardeildarstjóri. mbl.is/Kristinn Magnússon

Blóðbankinn hefur tekið í notkun þrjár nýjar vélar til að safna blóðflögum og plasma. Er um að ræða nýjar vélar sem koma á grunni þjónustusamnings við söluaðila sem endurnýjar vélar bankans reglulega.

Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen, deildarstjóri blóðsöfnunar hjá Blóðbankanum, segir að vélarnar séu þægilegri og einfaldari í vinnslu en eldri vélar og þá stytti þær einnig tímann sem hver gjafi þarf að bíða um 5-10 mínútur af um einni og hálfri klukkustund.

Vélarnar komu á mánudaginn og Jórunn segir að það sé enn verið að prófa þær á fyrstu blóðgjöfunum og þjálfa starfsfólkið.

Vélarnar munu sem fyrr segir gagnast við söfnun blóðflaga og plasma, en það eru tveir af þeim þremur þáttum blóðsöfnunar sem Blóðbankinn sér um. Hinn þátturinn er heilblóðsöfnun, sem flestir þekkja eflaust sem hafa sjálfir komið og gefið blóð.

Nýjar véar til blóðskiljunar teknar í notkun í Blóðbankanum.
Nýjar véar til blóðskiljunar teknar í notkun í Blóðbankanum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Blóðflögurnar eru meðal annars notaðar til að stoppa blæðingu og loka sárum. Rauðkornaþykknið sem er safnað með heilsöfnun er súrefnisríka blóðið og plasminn er blóðvökvinn sjálfur. Er hann meðal annars mikilvægur þegar meðhöndla á brunasár.

Blóðflögu- og plasmasöfnunin er að sögn Jórunnar mjög mikilvægur þáttur í söfnun bankans, en þá þurfa gjafar meðal annars að gefa sér um 90 mínútur til blóðgjafarinnar. Úr slíkum gjöfum og með því að nota sérstök tæki eins og þau sem voru tekin í notkun í vikunni fást tveir skammtar af blóðflögum úr hverri gjöf. Ef safna á blóðkornum með hefðbundinni heilblóðsöfnun þarf aftur á móti átta gjafir til að geta blandað saman tvær einingar af blóðflögum. Þar sem blóðflögur duga aðeins í 7 daga að sögn Jórunnar er því mikilvægt að þeir sem gefi blóðflögur komi reglulega og jafnt yfir árið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert