Gat fannst við botn eldiskvíar

Eldiskvíar. Mynd úr safni.
Eldiskvíar. Mynd úr safni.

Komið hefur í ljós gat við botn silungseldiskvíar fyrirtækisins Arctic Sea Farm í Dýrafirði. Þetta segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Kemur þar fram að með uppgötvuninni kunni að hafa fundist meginskýringin á „mögulegri slysasleppingu regnbogasilungs“ sem fjallað var um síðastliðið haust.

Fréttir mbl.is:
Regnbogasilungur í annarri hverri á
Vilja rannsókn vegna regnbogasilungs

Tekið er fram í tilkynningunni að á þeim tíma hafi verið leitað mjög ítarlega skýringa, með skoðun á öllum kvíum þar sem regnbogasilungur er ræktaður. Ekkert óeðlilegt hafi þá komið í ljós.

„Þess má t.d. geta að kvíanet eru hreinsuð með sérstakri netaþvottavél sem er búin myndavélum og slík hreinsun var framkvæmd á þessari tilteknu kví í síðasta mánuði og kom þá ekkert í ljós sem gaf til kynna að gat væri á netinu,“ segir í tilkynningunni.

„Mikið áfall fyrir starfsmenn og eigendur“

„Gatið sem kom í ljós í dag og er alveg við botn kvíarinnar fannst við slátrun upp úr kvínni. Slátrun er ekki lokið en þegar hefur verið gripið til aðgerða með lokun gatsins en því miður er fyrsta mat starfsmanna það að umtalsvert magn regnbogasilungs sé sloppið.

Viðbragðsáætlun við slysasleppingu var virkjuð þegar í stað og var Fiskistofu gert viðvart, m.a. vegna samráðs um næstu skref.  Auk þess sem um umtalsvert tjón er að ræða fyrir fyrirtækið er hér um að ræða mikið áfall fyrir starfsmenn og eigendur sem vinna að uppbyggingu fiskeldis á Vestfjörðum.“

Segir að lokum að ljóst sé að fram undan sé ítarleg greining á orsökum gatsins í samstarfi við Fiskistofu og MAST, „með það að markmiði að draga lærdóm af, m.a. varðandi kvíaútbúnað og fleiri þætti. Útbúnaður kvía er nú þegar í ítarlegri skoðun hjá fyrirtækinu þar sem m.a. er unnið að innleiðingu strangari krafna sem settar hafa verið af hálfu eftirlitsaðila.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert