Réttlætismál fyrir sjómenn

Sjómenn telja að leiðréttingar sé þörf á ójafnræði í skattalegri …
Sjómenn telja að leiðréttingar sé þörf á ójafnræði í skattalegri meðferð á dagpeningum. mbl.is/Hlynur Ágústsson

Sjómannasamband Íslands segir að viðræður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Sjómannasamtakanna hafi gengið vel liðna daga og að sameiginlegur skilningur sé með aðilum um helstu kröfur.

„Líkt og komið hefur fram í umræðu hafa sjómenn talið að leiðréttingar sé þörf á ójafnræði í skattalegri meðferð á dagpeningum. Sjómenn telja mikilvægt að úr þessu verði bætt. Þar sem um réttlætismál er að ræða hefur þetta veruleg áhrif í þeim kjaraviðræðum sem nú standa yfir,“ segir í tilkynningu frá Sjómannasambandi Íslands.

„Ráðherra hefur lagt til að fram fari heildstæð greining og skoðun á fæðis- og dagpeningum almennt á vinnumarkaði. Greining þessi er vafalaust jákvæð. Enn stendur þó út af að fá viðurkenningu stjórnvalda á skattalegri meðferð á dagpeningagreiðslum til sjómanna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert