Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út fyrr í kvöld vegna gasleka á höfuðborgarsvæðinu.
Þar lak gas að stórum hluta inn í íbúð en maðurinn í húsinu náði að fara út með kútinn. Það skapaðist mikil hætta vegna lekans og það þurfti að rýma húsið og hreinsa, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu.
Slökkviliðið notaði yfirþrýstingsblásara til að losa gasið úr húsinu og aðgerðum slökkviliðsins er lokið.
Slökkvilið vill koma því á framfæri að gaskútar geta skapað mikla hættu. Slíkir kútar eigi ekki að geymast innandyra nema þeir séu merktir þannig. Helst eigi að geyma kútana úti þannig að ef það leki frá honum þá fari það út í andrúmsloftið en ekki inn.