Alþingisnefndir funda vegna verkfalls

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra sést hér koma á fund efnahags- …
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra sést hér koma á fund efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vegna sjónmannaverkfalls. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, VG situr einnig fundinn. mbl.is/Kristinn Magnússon

Rætt verður um sjómannaverkfallið á fundi efnahags- og viðskiptanefndar sem hófst fyrr í morgun. 

Fulltrúar atvinnuveganefndar mættu einnig til fundarins. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, situr fundinn. 

Vilhjálmur Bjarnason, Sjálfstæðisflokki og Hanna Katrín Friðriksson, Viðreisn, á fundi …
Vilhjálmur Bjarnason, Sjálfstæðisflokki og Hanna Katrín Friðriksson, Viðreisn, á fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vegna sjómannaverkfalls. mbl.is/Kristinn Magnússon

Morgunblaðið greindi frá því í morgun að mögulegt væri talið að gengi yrði frá samningi á milli sjómanna og útgerðarmanna í bítið í dag. 

Katrín Jakobsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson, formenn VG og Framsóknarflokksins, …
Katrín Jakobsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson, formenn VG og Framsóknarflokksins, á fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingsi vegna sjómannaverkfallsins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Full­trú­ar sjó­manna funduðu með Þor­gerði Katrínu í sjáv­ar­út­vegs­ráðuneyt­inu á ell­efta tím­an­um í gær­kvöldi en fund­ar­menn vildu ekki gefa neitt upp um efni fund­ar­ins.

Fjölmennt á fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vegna sjómannaverkfalls.
Fjölmennt á fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vegna sjómannaverkfalls. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert