Árekstur á Reykjanesbrautinni

Árekstur varð á milli lítillar rútu og fólkbíls á Reykjanesbraut til móts við Ásvelli í Hafnarfirði um klukkan tvö í dag.

Bílar frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins voru sendir á vettvang en enginn var fluttur á slysadeild enda engin meiðsl á fólki samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu.

Slökkvilið hefur lokið við hreinsivinnu á vettvangi og umferð er komin í eðlilegt horf á Reykjanesbrautinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert