Tveir hafa verið fluttir með sjúkrabíl á sjúkrahús eftir árekstur á Suðurlandsvegi nú um klukkan fimm, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Lögreglan hefur lokað fyrir umferð frá hringtorginu við Hádegismóa niður á Suðurlandsveg, og um Suðurlandsveg sjálfan til norðurs.
Uppfært: Opnað hefur verið fyrir umferð á ný.