Dánarorsök mannsins liggur fyrir

Bráðabirgðaniðurstaða úr krufningu á líki manns, sem fannst látinn við Heiðarveg á Selfossi hinn 9. febrúar, liggur nú fyrir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.

Maðurinn er þar sagður hafa látist af náttúrulegum orsökum. Ekki er grunur um að refsiverð háttsemi tengist því á neinn hátt.

Maðurinn, sem var með pólskt ríkisfang, hét Jerzy Krzysztof Mateuszek og var fæddur árið 1972, skráður til heimilis í Reykjavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert