74% Íslendinga andvíg sölu sterks áfengis í matvöruverslunum

mbl.is/Heiðar Kristjánsson

58% þjóðarinnar eru andvíg því að heimila sölu léttvíns í matvöruverslunum. Um 32% eru því fylgjandi. Andstaðan hefur aukist frá febrúarbyrjun 2016, þegar 52% voru andvíg en 35% fylgjandi sölu léttvíns í matvöruverslunum.

Ofangreindar eru niðurstöður könnunar Maskínu sem gerð var dagana 21.-27. febrúar. Svarendur voru 845.

Samkvæmt könnuninni er yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar andvígur sölu sterks áfengis í matvöruverslunum, eða nærri 74%. Þá eru 56% andvíg sölu bjórs í almennum verslunum en 33-34% fylgjandi.

Nánar má lesa um niðurstöðurnar á heimasíðu Maskínu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert