Kjarasamningum ekki sagt upp

Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, …
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, takast í hendur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Forsendunefnd samninganefndar Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins segir eina af forsendum núgildandi kjarasamninga vera brostna. Samninganefndin ákvað þó að fresta viðbrögðum vegna þessa til febrúar 2018 og verður kjarasamningum því ekki sagt upp að þessu sinni.

Þetta kom fram á blaðamannafundi í húsnæði ASÍ við Guðrúnartún nú fyrir stuttu.  Á fundinum kom fram að forsendan um að launastefna og launahækkanir samninganna hafi verið stefnumarkandi fyrir aðra kjarasamninga hafi ekki staðist. Er forsendubresturinn byggður á launahækkunum í kjarasamningum sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara og Félags tónlistarskólakennara.

Fram kemur í fréttatilkynningu sem send var út í kjölfar fundarins að ljóst væri að tvær af þremur forsendum kjarasamninga standist en ein geri það ekki. Hún snúist um launaþróun annarra hópa. Samninganefnd ASÍ hafi engu að síður, meðal annars að undangengnum fundarhöldum í baklandi stéttarfélaganna, ákveðið að segja ekki upp núgildandi kjarasamningi. 

Forsendurnar sem voru til skoðunar eru þessar:
1. Fjármögnun stjórnvalda á stofnframlögum ríkisins til 2.300 almennra íbúða á árunum 2016-2019 eða að hámarki 600 á ári.
2. Mat á því hvort sú launastefna og þær launahækkanir sem í samningnum fólust hafi verið stefnumarkandi fyrir aðra á vinnumarkaði (32% hækkun frá nóv. 2013 – des. 2018).
3. Aukinn kaupmáttur á samningstímanum.

Mat samninganefndar ASÍ er á þá leið að ákveðin verðmæti felist í núgildandi samningi, það er 4,5% almenn launahækkun 1. maí og hækkun á mótframlagi atvinnurekenda í lífeyrissjóð um 1,5% 1. júlí, auk þess sem lítill áhugi sé á því að almenni markaðurinn fari fyrstur í þeim kjaraviðræðum sem fram undan séu. Er vísað í því sambandi til þess að mörg opinberu félaganna séu með lausa samninga síðar á þessu ári.

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, Björgólfur Jóhannsson, formaður SA, og …
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, Björgólfur Jóhannsson, formaður SA, og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert