Mál Borgunar komið til héraðssaksóknara

Fjármálaeftirlitið hefur sent vísun til embættis héraðssaksóknara vegna mál sem tengist eftirliti með peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Á föstudaginn var greint frá því að FME krefðist viðeigandi úrbóta hjá Borgun eftir að athugasemdir höfðu verið gerðar í 13 tilviku af 16 eftir skoðun FME. RÚV greindi frá málinu í hádegisfréttum í dag.

Ólafur Hauksson héraðssaksóknari staðfestir í samtali við mbl.is að vísunin hafi komið í gær, en það er þegar FME vekur athygli embættisins á mögulegu broti án þess að senda kæru. Ólafur segir málið tengjast umræddum meintum peningaþvættis- og gegnsæisbrotum. Nú taki við greiningarvinna hjá embættinu og ákvörðun um mögulega ákæru eða hvort fella eigi málið niður svo tekin í kjölfarið.

Í niður­stöðum Fjár­mála­eft­ir­lits­ins eru at­huga­semd­ir gerðar við að Borg­un hf. hefði í til­viki 13 viðskipta­manna af 16 ekki fram­kvæmd könn­un á áreiðnaleika upp­lýs­inga um viðskipta­menn­ina með full­nægj­andi hætti áður en samn­ings­sam­bandi var komið á.

Meðan á at­hug­un Fjár­mála­eft­ir­lits­ins stóð sleit Borg­un viðskipta­sam­bandi við þrjá þess­ara viðskipta­manna.

Fjár­mála­eft­ir­litið gerði einnig at­huga­semd­ir varðandi fram­fylgni Borg­un­ar hf. við lög um aðgerðir gegn pen­ingaþvætti  og fjár­mögn­un hryðju­verka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert