Banaslys í Silfru

Silfra á Þingvöllum hefur notið mikilla vinsælda hjá ferðamönnum.
Silfra á Þingvöllum hefur notið mikilla vinsælda hjá ferðamönnum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Bandaríkjamaður á sjö­tugs­aldri lést þar sem hann var að snorka í Silfru á Þing­völl­um síðdegis í dag. Hann var fluttur með þyrlu frá Land­helg­is­gæsl­unni á Land­spít­al­ann þar sem læknar úrskurðuðu hann látinn.

Það var laust fyrir kl. 16 sem útkall barst Neyðarlín­unni en þá hafði mann­in­um hafði verið bjargað á land. Lögregla og sjúkralið fóru þá á vettvang og þyrla, eins og jafnan er gert í tilvikum sem þessum.

Að sögn Odds Árna­son­ar, yf­ir­lög­regluþjóns hjá lög­regl­unni á Suður­landi, var maður­inn í skipu­lagðri ferð hér á landi með fjöl­skyldu sinni.

Rúm­ur mánuður er liðinn síðan mjög sambærilegt slys varð í Silfru, þar sem banda­rísk­ur karl­maður á sjö­tugs­aldri lést.

Uppfært kl. 22.31:

Ákveðið hefur verið að loka Silfru um óákveðinn tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert