Artur tók út óverulega upphæð

Artur Jarmosz­ko er 25 ára.
Artur Jarmosz­ko er 25 ára.

Björgunarsveitir munu halda áfram leit að Arturi Jarmosz­ko á laugardag. Á morgun mun þyrla Landhelgisgæslunnar fljúga yfir leitarsvæðið. Leitað verður á svipuðu svæði og fyrr í þessari viku, þ.e. við strandlengjuna í Reykjavík og Kópavogi, m.a. í Fossvogi.

Ekkert hefur spurst til Arturs frá því aðfararnótt 1. mars. Guðmundur Páll Jónsson lögreglufulltrúi segir að nú sé verið að vinna úr ýmsum gögnum, m.a. úr síma Arturs og tölvu sem og eftirlitsmyndavélum og vísbendinga leitað sem gætu þrengt leitina. Guðmundur segist mögulega eiga von á því að fá upplýsingar í kvöld eða á morgun sem komi að notum í þessu efni.

Lögreglan er einnig að fara yfir upptökur úr eftirlitsmyndavélum sem henni hafa borist, m.a. frá fyrirtækjum. Þegar er búið að staðfesta að Artur sést á myndavélum í miðbænum, m.a. við Hjálpræðisherinn og svo síðast á gangi í Suðurgötu um klukkan 1 nóttina sem hann hvarf. Von er á frekari gögnum úr myndavélum sem nú verður lagst yfir.

Ekkert bendir til saknæms athæfis

Guðmundur ítrekar að ekkert bendi til saknæms athæfis í tengslum við hvarfið. Þá segir hann mjög ólíklegt að Artur hafi farið úr landi. Í fréttum hefur komið fram að Artur tók út peninga skömmu áður en síðast spurðist til hans. Guðmundur bendir á að sú upphæð hafi verið mjög óveruleg og t.d. engan veginn dugað fyrir flugmiða. 

Art­ur, sem er 25 ára og grann­vax­inn, dökk­hærður með stutt hár, 186 sentí­metr­ar á hæð og með græn augu, er pólsk­ur en hef­ur búið á Íslandi um all­nokk­urt skeið. Þeir sem geta gefið upp­lýs­ing­ar um ferðir Art­urs, eða vita hvar hann er að finna, eru vin­sam­leg­ast beðnir um að hafa sam­band við lög­regl­una í síma 444-1000.

Upp­lýs­ing­um má einnig koma á fram­færi í tölvu­pósti á net­fangið gudmund­ur.pall@lrh.is eða í einka­skila­boðum á Face­book-síðu lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert