Mikil lyfjanotkun á Íslandi

Ísland er í fjórða sæti yfir fjölda fólks sem notar lyfseðilsskyld lyf í Evrópu. Fleiri konur en karlar nota slík lyf. Munur á kynjunum er mestur í aldurshópnum 15–24 ára en enginn í aldurshópnum 65 ára og eldri.

Á Íslandi nota um 55% fólks lyfseðilsskyld lyf, sem er fjórða hæsta hlutfall þeirra Evrópulanda sem tóku þátt í evrópsku heilsufarsrannsókninni. Hlutfallið er hæst í Belgíu, um 60%, en lægst í Rúmeníu, tæp 23%. Af Norðurlöndunum kemst Finnland næst Íslandi með tæp 55%, þar á eftir er Noregur með 47,5% og Svíþjóð með um 47%. Danmörk er lægst Norðurlandanna með um 46%.

Tæp 63% kvenna á Íslandi nota lyfseðilsskyld lyf en tæp 48% karla. Mestur munur var á kynjunum í aldurshópnum 15–24 ára, en um 56% kvenna á þeim aldri notaði slík lyf samanborið við rúm 26% karla. Hlutfallið lækkar í rúm 45% kvenna í aldurshópnum 25–34 ára en hækkar í rúm 33% á meðal karla á þeim aldri. Notkun lyfseðilsskyldra lyfja eykst hratt með hækkandi aldri. Hlutfall notenda hækkar meira meðal karla en kvenna frá 45–64 ára, en skiptingin er nokkuð jöfn milli kynja í elsta aldurshópnum, eða um 87%, samkvæmt frétt Hagstofu Íslands.

Hagstofa Íslands
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert