Fögrusalir töpuðu í Hæstarétti

Við Jökulsárlón í Öræfum.
Við Jökulsárlón í Öræfum. mbl.is/Rax

Hæstiréttur Íslands hefur vísað máli Fögrusala ehf. frá og staðfest þar með úrskurð héraðsdóms. Málið snýst um að Fögrusalir ehf. keyptu jörðina Fell í Suðursveit 4. nóv­em­ber síðastliðinn en ríkið hafði þá lög­um sam­kvæmt 60 daga til að ganga inn í kauptil­boðið. 66 dög­um síðar til­kynnti ríkið að það hygðist ganga inn í kauptil­boðið. 

Fögrusalir ehf. kröfðust þess að felld yrði úr gildi sú ákvörðun sýslumanns að fallast á kröfur ríkisins um að ganga inn í kaupsamninginn og gefa út afsal fyrir jörðinni til ríkisins. 

Í héraðsdómi var málinu vísað frá á þeim grundvelli að kröfur Fögrusala ættu sér ekki stoð í lögum um nauðungarsölu.

Hró­bjart­ur Jónatans­son, lögmaður Fögrusala ehf., sagði 8. mars síðastliðinn við mbl.is að ef niðurstaða Hæsta­rétt­ar yrði á sama veg og héraðsdóms verði farið í al­mennt mál. Ekki náðist í hann við vinnslu fréttarinnar. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert