Harður árekstur við Kaplakrika

mbl.is/Hjörtur

Tveir voru fluttir töluvert slasaðir á sjúkrahús eftir mjög harðan árekstur skammt frá gatnamótum Kaplakrika og Reykjanesbrautar í morgun, samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra í slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Hafnarfirði voru bílarnir að mætast og fór annar þeirra yfir á rangan vegarhelming með þessum afleiðingum. Báðir bílarnir eru mjög illa farnir og væntanlega ónýtir, að sögn lögreglu. Ekkert vegrið er á þessum slóðum að sögn lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert