„Taka þyrfti snúning á Íslandi“

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra.
Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra. mbl.is/Rax / Ragnar Axelsson

„Ríkisstjórnin stimplar án þess að hiksta að vogunarsjóðir eignist stóran hlut í íslenska bankakerfinu. Þetta eru sömu sjóðir og tóku stöðu gegn íslensku krónunni og unnu leynt og ljóst að falli hennar. Hvað sem líður lögum og reglum er þetta varla innan þeirra mórölsku marka sem ríkisstjórn landsins getur leyft sér.“

Þetta segir Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Samfylkingarinnar, á Facebook-síðu sinni í dag um sölu á 30% hlut Kaupþings í Arion banka til breskra og bandarískra vogunarsjóða auk bandaríska fjárfestingabankans Goldman Sachs. Össur segir engan vita hvaða einstaklingar séu á meðal raunverulegra eigenda.

„Fjármálaráðherrann [Benedikt Jóhannesson] segir að það sé bagalegt, en gerir að öðru leyti engar athugasemdir við það – og klínir svo ábyrgðinni á ríkisstjórn Sigmundar Davíðs [Gunnlaugssonar]. Ég var ekki aðdáandi hennar, en fyrr má nú fyrr vera,“ segir Össur.

Bætir hann við að um skeið hafi það verið nánast opinbert leyndarmál á síðasta kjörtímabili að rætt væri um það í röðum vogunarsjóða að taka þyrfti snúning á Íslandi með því að eignast hlut í bönkunum áður en þeir hyrfu endanlega héðan.

„Það var tekið svo alvarlega að sérfræðingar gengu á fund forystumanna ríkisstjórnarinnar til að vara við því. Nú er því tekið með fagnaðarlátum af íslenskum ráðherrum,“ segir Össur enn fremur. Þá hafi verið upplýst að einn sjóðanna hafi þurft að greiða 23 milljarða í sektir fyrir fimm mánuðum vegna stórfelldra mútugreiðslna í fimm Afríkuríkjum.

Bendir hann á að eitt sinn hafi verið gerðar ákveðnar kröfur til fjárfesta til þess að þeir fengju að fara með hlut í íslensku bönkunum. Spyr hann hvort sú sé ekki raunin lengur eftir að Viðreisn og Björt framtíð tóku sæti í ríkisstjórn.

Skrifum sínum lýkur Össur með því að segja að Sigmundur Davíð hafi greitt ríkisstjórninni þyngsta höggið með því að vekja athygli á mútugreiðslum eins vogunarsjóðsins í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Að öðru leyti hefði stjórnarandstaðan haft lítið um málið að segja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert