Aðalmeðferð hafin í máli Hlínar og Malínar

Malín Brand mætir í Héraðsdóm Reykjavíkur nú í morgun.
Malín Brand mætir í Héraðsdóm Reykjavíkur nú í morgun. mbl.is/Árni Sæberg

Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn systrunum Hlín Einarsdóttur og Malín Brand, sem m.a. eru ákærðar fyrir að reyna kúga fé út úr Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni þáverandi forsætisráðherra, hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur rétt eftir klukkan níu í morgun. 

Þinghaldið í málinu er lokað.

Fréttavefur RÚV hefur eftir Kolbrúnu Garðasdóttur, verjanda Hlínar, að lögregla hafi hins vegar fellt niður nauðgunarkæru Hlínar Einarsdóttur gegn fyrrverandi samstarfsmanni sínum í nóvember og að sú ákvörðun hafi ekki verið kærð til ríkissaksóknara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert